Fullnæging

Ég keypti mér bók um daginn sem heitir Fullnæging og fjallar um fullnægingar; ráð, staðreyndir, fróðleik, hugmyndir og hversu æðislegar þær eru. Bæði karla og kvenna og það sem kom mér verulega á óvart er mismunur karl- og kvenfullnæginga. Málið er að meðal fullnæging karla tekur frá 6 og upp í 10 sekúndur en hjá konum 13 og upp í 51 sekúndu.

Sveitastrákurinn fullnægði mér æðislega í gærmorgun. Ég var rosalega lengi að fá það en fullnægingarvíman var líka rosalega löng. Ég þori að veðja að hún var í eitthvað á milli 2 - 3 mínútur.

Hver kannast ekki við það þegar fullnægingin er alveg að koma... Það vantar bara millimeter upp á að maður bresti í heljarins fullnægingu. Tilfinningin unaðsleg og maður titrar og skelfur, ekkert annað kemst að. Þetta ástand getur verið frá örfáum sekúndum og upp í lengri tíma.
Hjá mér var ég enn nær en þetta, nanómeter frá fullnægingunni, í sæluvímu, ég gat varla greint muninn og vááá... bara gott.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já veistu að þetta getur alveg verið ferlega stutt hjá okkur strákunum, en það er til aðferð til að lengja raunverulega fullnæðingu karlmanna, en hún krefst þess að konan kunni til verka, í tantra og sambærilegum fræðum er sýnt fram á hvernig hægt er að lengja fullnæðinguna allt upp í nokkrar mínútur og jafnvel að láta manninn fá raðfullnæðingu, það eru hinsvegar alltof margar konur svo uppteknar af sjálfum sér að þær gleyma leikfélaga sínum. ég hef verið með konu sem er ótrúlega hæfilíkarík þegar kemur að Tantra og skildum fræðum, hún hefur opnað alveg nýja vídd fyrir mér og Prinsessa fyrst þér þykir kynlíf svona gott þá ættir þú að líta þér aðeins nær, þetta hráa kynlíf sem við flest lifum er ekki nema brota-brot af því sem við getum upplifað t.d. með Tantra, ég hef prófað nánast allt þegar kemur að kynlífi nema Masó og hef ekki áhuga á slíkum viðbjóð, en trúðu mér það kick sem þarna bíður þín er eitthvað sem þú villt upplifa, Kanski getur Sveitastrákurinn hjálpað þér, ég veit að þeir kunna til en nei vinkona við höfum aldrei hist en við höfum þó skipst á skeytum Kv. stt
Nafnlaus sagði…
Mér finnst ósmekklegt að kalla masó "viðbjóð". Og svo heitir það fullnæGing en ekki fullnæÐing. Ekki alveg jafnvíðsýnn og þú gefur þig út fyrir að vera eða???
Nafnlaus sagði…
My mistake kennslukona :)...jú ég leyfir mér að kalla það vibjóð því ég var vitni af slíkum aðförum í vetur sem leið og það voru hræðilegar aðfarir, en það er svo sem rétt hjá þér!!!, allir eiga rétt á að lifa sínu lífi eins og þeim listir hversu twistit það kann að vera,,ég byðst velvirðingar á þessum hroka mínum...en eitt að lokum víðsýni hefur ekkert með stafsetningu að gera, og þér til fróðleiks þá ferðaðist ég 80.000km í fyrra vegna atvinnu minnar og er þegar búinn að ferðast 45.000km á þessu ári út um allan heim, þannig að gættu orða þinna líka heillinn,karlinn!! :)Peace.....for all of us.. :)
Nafnlaus sagði…
Kommentið um víðsýnina átti að sjálfsögðu við hroka þinn gangvart því kynlífi sem þú þekkir ekki. - en ekki við stafsetninguna!

Þótt þú hefðir ferðast um jörðina gjörvalla þýddi það ekki endilega að þú værir víðsýnn og mér finnst fullyrðingar þínar um SM kynlíf einkennast af fordómum og kunnáttuleysi. Ég skal ekkert neita því að þú hafir séð einhverja SM senu sem misbauð þér (og kannski hefði hún jafnvel misboðið mér) en þú getur ekki dæmt út frá því.

Einkunnarorðin í (BD)SM eru öruggt - samþykkt - meðvitað eins og stendur skýrum stöfum efst á síðunni. Það að þér þyki einhver ein sena ógeðsleg (og það er til nóg af slíku efni) þá er ekki þar með sagt að SM sé ógeðslegt og "twisted" eins og þú kemst að orði. Þetta er eins og ég myndi rekast á ógeðslega leiðinlegan Breta og álykta út frá því að allir Bretar væri bara ógeðslega hundleiðinlegir! Pældu aðeins í hugsanaferlinu hjá þér.
Nafnlaus sagði…
Ég bara varð að tjá mig um þetta! Mér finnst frekar hæpið að víðsýnn maður myndi álykta að heil grein innan kynlífs sé viðbjóður af því að hann hefur orðið vitni að einni athöfn innan allrar greinarinnar. Það er svipað og að segja að reykingar séu ekki hættulegar af því að einn aðili sem reykti lifði til hundrað ára aldurs! Auk þess tel ég ekki að víðsýni hafi neitt með ferðalög að gera, sami þröngsýni maðurinn getur ferðast mörg þúsund km án þess að hugarfar hans breytist nokkuð.
Nafnlaus sagði…
En þú ályktaðir sem svo að SM væri viðbjóður út frá þessari upplifun. Hvað ertu að reyna að segja? Mér finnst þú kominn í mótsögn við sjálfan þig.
Nafnlaus sagði…
Sorry miss m. Sýndist þetta vera frá Anonymous og skildi ekki neitt;)
Nafnlaus sagði…
Er ekki í lagi að hver og einn hafi sýna skoðun á því hvað það er sem þykir jákvæt/neikvæt, þið sem eru þarna að ræða annarsvegar stafsetningu og hins vegar hroka að þá langar mig að koma þessu að hér, í 38 ár hef ég verið starfandi sem yfirmaður í yfir 250manna fyrirtæki, og vonandi ein af þessum konum sem komst til metorða án þess að gera það með opið klofið, mig langar að benda ykkur á að þessi maður hefur fullan rétt á sinni skoðun og þið eruð ekki síður hrokafull að ráðast gegn hans skoðun eða rithætti og ég er vissum að það sem hann átti við með víðsýni er ekki endilega umburðarlyndi eða hroki heldur það sem hann hefur upplifað og eða orðið vitni að í mismunadi þjóðfélögum, og ykkur til fróðleiks þá eru margir sem lenda í aðstæðum að kynlífi sem algjörlega gegn þeirra vilja en aðstæður leyfa þeim ekkert annað, og hér tala ég af reynslu sem átti sér stað fyrir 12 árum í nokkuð merkum klúbb sem var við líði hér í Reykjavík, hafið þetta bak við eyrun elskurnar og dæmið ekki þá sem þið viljið ekki að dæmi ykkur en gott að þessi umræða er í gangi. Njótið dagsins,,,
Nafnlaus sagði…
Góða besta komdu niður af þínum háa hest kelling.
Nafnlaus sagði…
Áhugaverðar umræður.

Verð að segja það við anonyous nr. 1 að þér má þykja BDSM-lífsstíllinn ógeðfelldur, en vinsamlegst berðu virðingu fyrir þeim sem stunda þetta og ekki tala niðrandi um hann. Það vill enginn að það sé talað niðrandi um þeirra áhugamál.

Að sama skapi ætla ég ekki að tala niðrandi um tantra þó svo ég hafi ekki kynnt mér það mikið og hafi ekki í hyggju að byrja að stunda tantra-tengt kynlíf í bráð.

Og eitt til ykkar allra anonymousa: Skrifiði undir nafni eða nicki. Það er ómögulegt að fylgjast með þessum umræðum svona.
Nafnlaus sagði…
Að kalla þetta viðbjóð eftir eitt skipti,, voðalegir fordómar eru þetta,, ef þú sæir gamla bíldruslu úti á götu, myndir þú þá úthúða alla bíla sem druslur?
Nafnlaus sagði…
vá verð nú bara að segja komm on gott fólk honum finnst þetts viðbjóður og hvað erum við að setja út á hans skoðanir og hugmyndir um kynlýf og kynlífstengda leiki ættum heldur að fræða en að hæða ekki satt betra að benda honum á efni til að skoða en að reyna að tala niður til hans ekki satt.allir hafa sína skoðun á öllu og meiga það alveg fyrir mér og finnst það bara hið besta mál annars væri helvf leiðinlegt að lifa ekki satt en finnst gaman af því hvað´margir eru hörundssárir sem eru að kommentera á þessari síðu hennar vinkonu minnar en gott fólk eins og ég sagði fræða ekki hæða... með kveðju B.J
Nafnlaus sagði…
sammála Iceman

Vinsælar færslur