Grensásvideo

Ég uppgvötaði Grensásvideo um daginn.

Ég og Sveitastrákurinn fórum þangað á sunnudagskvöldið í þeim tilgangi að leigja eitthvað dónalegt til að horfa á. Það tókst með eindæmum vel.

Baka til í búðinni er deild með klámmyndum. Að vísu þarftu að biðja um að komast þangað, en þjónustan þarna er rosalega góð og okkur mætti bara gott viðmót.
Mörgum finndist þetta eflaust vera vandræðalegt og myndi skorta kjark í að biðja um að fá að fara á bakvið, en gott starfsfólk léttir þetta til muna.

Eftir að hafa rótað í gegnum möppu með ógrinni af klámtitlum sem var hver öðrum meira spennandi, völdum við tvær myndir. Eina BDSM og aðra vanillu.

Þegar heim var komið skelltum við þeim í tækið og horfðum á. Þetta dugði til að kveikja bál sem er ekki ennþá slokknað og framundan var villt nótt með geggjuðu kynlífi.

Ég mæli með þessu fyrir fólk sem vill krydda kynlífið hjá sér eða fyrir einstaklinga sem eru komnir með leið á sínum eigin klámmyndum.
Leigan á myndinni er 600 kr. sólarhringurinn og úrvalið þarna er bara til að slefa yfir. Eitthvað af öllu fyrir alla.

Ummæli

Vinsælar færslur