Kynhneigðir

Til eru í heiminum fjölmargar kynhneigðir og öll tilheyrum við einhverri þeirra. Það er þessi skemmtilega árátta samfélagsins að flokka einstaklinga í hópa.

Gagnkynhneigð (heterosexual)= Einstaklingar sem hrífast af fólki af gagnstæðu kyni.
Samkynhneigð (homosexual)= Einstaklingar sem hrífast af fólki af sama kyni.
Tvíkynhneigð (bisexual)= Einstaklingar sem hrífast af fólki beggja kynja.
Sjálf-kynhneigð (narcissisexual)= Einstaklingar sem hrífast af sjálfum sér.
Ó-kynhneigð (asexual)= Einstaklingar sem hafa ekki kynhneigð eða kynlöngun.
Al-kynhneigð (pansexual)= Einstaklingar sem hrífast að öllum, óháð kyni, kynþætti eða kynhneigð.

Síðan er til eitthvað sem kallast á lélegri Íslensku bi-curious eða tvíkynhneigðs-forvitni.

Þetta var svolítið rætt í sumarbústaðarferðinni hér forðum: Munurinn á því að vera bi-sexual eða bi-curious.
Þarna var samankomið fólk sem skilgreindi sig á báða vegu og þetta varð mjög áhugaverð umræða. En upp úr krafsinu kom að þeir sem eru bi-sexual eða tvíkynhneigðir eru þeir sem myndu ekki veigra sér við að stofna til sambands við einstakling af hvoru kyni sem er, á meðan þeir sem aðeins eru forvitnir eru til í að stunda kynlíf með einstaklingi af sama kyni en ekki stofna til sambands með viðkomandi.

En að allt allt öðru

Ég var að blaða í gegnum gamla stílabók og fann lista sem er nokkurra ára gamall.
Það er rosalega gaman að finna svona bækur og blaða í gegnum þær. Hvað af væntingunum hefa ræst? Hvaða áhugamál breyst? En þessi listi er svo gott sem eins. Ég er samt ekki viss hvort hann sé rétt áður eða rétt eftir að ég var farin að pæla í BDSM af einhverju viti.

Hlutir sem ég elska í kynlífinu

1. Strokur sem hafa enga sérstaka merkingu. Strokur, klór, nudd á svæðum sem hafa ekki endilega kynferðislega virkni s.s. bak, hendur og fætur

2. Tal um kynlíf og hvað maður fílar og hvað ekki. Sérstaklega þegar það er notað til að æsa mann upp.

3. Að vera bitin, sogin fast á brjóstunum.

4. Að vera sleikt og puttuð á sama tíma, puttuð í píku og rass.

5. Að vera strítt, fá ekki það sem ég vil lengi!!!

6. Að vera bundin niður/haldið niðri.

7. Að vera með bundið fyrir augun.

8. Að vera stjórnað, völdin tekin af mér.

9. Erótískar sögur.

10. Kysst og sleikt ofarlega á bakið.

11. Vil vera sleikt beint á snípinn. Reglulegur sláttur á snípinn virkar best, fast frekar en laust.

12. Leggöng nudduð að innan, fram og upp.

Ummæli

Vinsælar færslur