Villt og Spennandi

Gamlir graðir riðlar hafa af og til haft samband við mig. Sem er bara af hinu góða.
Eins og í gær þá fékk ég sms frá einum þeirra. Þegar hann fékk að vita að ég væri komin á fast og ætlaði mér ekkert að hoppa upp í rúm með honum, þá fékk ég spurningu eitthvað á þá leið hvort ég væri nú að róast.
Róast? Spurði ég á móti og hann svaraði þá að ég hafi nú verið mjög villt og spennandi.

"Þú varst nú frekar villt og spennandi"

Ég VAR villt og spennandi.

Núna veit ég ekki hvernig þetta er í öðrum samböndum en mínu, en ég lifi mjög góðu, villtu, skemmtilegu og fullnægjandi kynlífi og get ekki séð að ég sé á nokkurn hátt að róast.
Enda held ég að þau sem hafa verið lausríðandi en fara síðan í samband komast flest að því að maður fær miklu meira og betra kynlíf með makanum en bólfélögum hingað og þangað.
Drátturinn er alltaf á vísum stað og maður þarf ekkert að leita...

Ég veit allavega hvar minn er ;)

Ummæli

Vinsælar færslur