Kynlíf í annarra manna rúmum

Ég veit ekki afhverju en það er eitthvað spennandi við að stunda kynlíf annarsstaðar en heima hjá sér.

Um helgina fórum ég og kærastinn heim til foreldra minna. Vorum voða dugleg á laugardeginum en sváfum út á sunnudeginum. Við rétt skriðum fram í mat og síðan upp í aftur. Við vorum inni í gamla herberginu mínu, í rúmi litla bróður míns. Kúrðum og káfuðum og allt í einu var allt komið á fullt og við vorum að nánast allan daginn.

Það lá eitthvað í loftinu og mér fannst bara spennandi að vera ekki í sama gamla rúminu í sama herberginu alltaf. Svo maður tali nú ekki um að það var fullt af fólki heima sem hefði getað gengið inn á okkur hvenær sem er.

Kannist þið við þetta?

Ummæli

Vinsælar færslur