Nauðganir

Nauðganir hafa borið hátt á góma í deiglunni undanfarið, enda hafa komið upp nokkur mjög hrottaleg mál.

Ég heyrði í Reykjavík Síðdegis fyrir nokkru rætt við konu frá Stígamótum.
Spyrillinn spurði hvort konur gætu gert eitthvað til að koma í veg fyrir eða draga úr áhættunni á því að vera nauðgað. Þá voru nefndir hlutir eins og að halda sig heima við, vera bara í návist vina, vera ekki undir áhrifum áfengis.
En málið er ekki svona auðvelt.
Yfir 70% naugana fara fram í heimahúsum, í yfir 60% tilfella er gerandinn einhver sem hægt er að kalla vin eða kunningja fórnarlamsins og í lang fæstum tilfella er áfengi undir höndum.

Ef það er til einhver töfralausn á þessu vandamáli, þá hefði ég ekkert á móti því að heyra hana.

Hinsvegar má benda á það að þeir dómar sem undanfarið hafa verið felldir í nauðgunarmálum eru hærri en undanfarið hafa þekkst. Það er gott og verður vonandi til þess að fleiri fórnarlömb leggi fram kæru.

En vissuð þið það að nauðgun er ein algengasta og stærsta fantasía kvenna?

Á vissan hátt er þetta þversögn. En athugið fantasían á ekkert skylt við alvöru nauðgun.
Nauðgun er ofbeldi og árás inn í innsta hring einkalífs fólks. Þau áhrif sem fólk verður fyrir eftir naugun er ekki hægt að líkja við neitt nema þau áhrif sem fólk verður fyrir eftir náttúruhamfarir og fólk ber þess merki alla tíð. Sumir jafna sig aldrei og geta aldrei stundað eðilegt kynlíf eftir þetta.

Ég sjálf á þessa nauðgunarfantasíu og er svo heppin að geta uppfyllt hana hvenær sem ég vil. Það er bara magnað að vera tekin mað valdi.
Kannski ætti þetta að vera valds-fantasía en ekki nauðgunar-fantasía?

Málið er að ég vil vera tekin með valdi, ég vil að mér sé ýtt niður í rúmið og fá ekkert um það að segja. Ég vil að það sé togað í hárið á mér og ég sé rassskellt, ég vil vera kölluð drusla og tík, ég vil vera tekin djúpt og harkalega.
En það er með einhverjum sem ég treysti og ég veit að stoppar ef hann gengur of langt og þar skilur á milli naugunar og fantasíu.

Öruggt, samþykkt og meðvitað!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæhæ

Hún þarna hjá Stígamótum hefur ábyggilega verið að ráðleggja þetta í ljósi þeirra nauðgana sem hafa komið upp nýlega, en þær hafa einmitt verið niðri í bæ eftir djammið þegar konur hafa verið einar á ferð.

Ég hef svo einmitt alltaf heyrt að nauðganir séu algengastar í heimahúsum og þá oft "vinur"/kunningi sem er gerandinn.... en ertu viss um að þetta með áfengið sé rétt? (þ.e. að það sé ekki haft um hönd í meirihluta tilvika) Hef aldrei heyrt það. Kæmi mér allaveganna á óvart.

Kv. slaveslut

Vinsælar færslur