Rúnk

Karlar rúnka
Konur fróa

Ég veit ekki afhverju, en það er bara þannig. Nema hvað karlar fróa sér líka stundum, en konur rúnka sér aldrei.

Í gærkveldi skreyð ég upp í rúm til sofandi kærastans. Hann rumskaði þegar ég kom upp í og ég kúrði mig upp við hann og fór að gæla laust við vininn. Þetta varð til þess að hann vildi endilega meira, svo ég fór að leika mér að honum.
Ég veit ekki afhverju tott á að heita betra en rúnk en það virðist vera almennt viðhorf fólks. Þegar ég var rétt farin að leika við besta vininn þá vildi kærastinn að ég myndi totta sig, en það langaði mig hreinlega ekki. Í staðinn rúnkaði ég honum.
Mér finnst það vera algengur misskilningur að tott sé endilega betra en rúnk. Ef maður spáir bara í þetta þá gefa hendurnar töluvert meiri möguleika heldur en munnur og tunga.
Galdurinn við gott rúnk er að vera óhræddur við að prófa sig áfram. Ef maður þorir það ekki er alltaf hægt að skoða bækur eða afla sér upplýsinga á netinu um góðar rúnk aðferðir. Limurinn er ekki brothættur og það er ekkert að því að breyta til og gera eitthvað annað en þessa týpísku strokk aðferð, upp og niður þangað til það sprautast úr honum. Mér t.d. finnst skemmtilegast og best að vera með nógu mikið sleipiefni, baða liminn í honum og bara strjúka hann hér og þar með fingrunum og fingurgómunum.

Karlmenn eru auðvitað misjafnir eins og þeir eru margir en mínum finnst rosalega gott að láta gæla, strjúka, kreista kónginn. Til eru aðferðir eins og að halda utanum liminn og kónginn eins og þú sért að fara að opna flösku, hafa aðra höndina fyrir ofan kónginn og stýra limnum eins og þú sért að skrifa í lófan á þér eða láta fingurna tromma létt á kónginn en mér finnst best að blanda þessu öllu saman og gera bara það sem mig langar til hverju sinni. Það getur orðið leiðigjarnt að halda alltaf í það sama gamla og þess vegna á maður að vera óhræddur við að prófa eitthvað nýtt.

Ég hef heyrt því fleigt fram að gott rúnk sé betra en tott.
Mér skilst að það sé eitthvað vit í því, því allavega sagði kærastinn minn þetta í gærkvöldi.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það er órúlega gaman þegar maður fær gott rúnk. Það getur verið betra en Tott. Persónulega finnst mér það gaman þegar það er leikið sér með kóning með fingrlum og kreistu.

Vinsælar færslur