Óvenjuleg kynlífsreynsla

Í gærkvöldi átti ég mjög óvenjulega kynlífsreynslu með kærastanum mínum.
Við lágum uppi í rúmi, snertumst ekki einusinni og töluðum saman.
Við töluðum um fantasíur, langanir, framtíðarplön, hvað okkur finnst gott og hvað ekki. Við töluðum um allt sem kom upp í huga okkar. Játuðum hvort fyrir öðru þrár sem ná út fyrir venjuleg skynsemismörk, fantasíur sem ganga langt út fyrir hið venjulega.
Það kom mér verulega á óvart hversu mikil svörun hann er við mínum kynlífsþörfum og löngunum. Eins mikið og ég dýrka að vera tekin ruddalega þá dýrkar hann að taka mig ruddalega. Það er unaðslegt.

Við skeggræddum "kink". Hvað væri kinky og hvað væri ekki kinky?
Við komumst að því að afbrigðilegheit eru mjög persónubundin. Sumum finnst afbrigðilegt að stunda kynlíf í stofunni á meðan aðrir verða fara út á miðjan fótboltavöll. Sumum finnast endaþarmsmök afbrigðileg á meðan öðrum ekki.

Ég komst líka að því að mér finnst fátt vera afbrigðilegt og fátt hefur þessi áhrif á mig.

Dæmi um það sem mér finnst EKKI vera afbrigðilegt:
-Endaþarmsmök
-Bindingar
-Kynlíf með aðila af sama kyni
-Pyntingar
-3 some
-Gang bang
-Hýðingar
-Öndunarstjórnun
-Kynlíf með mat
-Handjárn
-More some
-Ruddaskapur
-BDSM
-Nálaleikir
-Tvíkynhneigð
-Alls konar fetish
-Símakynlíf
-Klæðskiptingar
-Kynlíf á almanna færi
-Hlutverkaleikir
-Búningar
-Klám
-Kynlíf með ókunnugum

Það sem mér finnst hinsvar afbrigðilegt:
-Kynlíf homma og konu
-Ofbeldi og kynlíf
-Kynlíf með meðvitundalausri eða sofandi manneskju
-Áhorf á kynlíf annarra
-Kynlíf með einhverskonar vopni

Þessi listi er alls ekki tæmandi og það væri gaman að vita hvað ykkur finnst síðan kinky og hvað ekki.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Sammála fyrri listanum en ekki seinni listanum.

Mér finnst kynlíf homma og konu ekki afbrigðilegt (því flest erum við örlítið curious í hina áttina), áhorf á kynlíf annarra finnst mér alls ekki afrbigðilegt og ekki heldur með vopni... að því gefnu að vopnið sé ekki notað til ofbeldisverka að sjálfsögðu.

Vinsælar færslur