Læknar eru sadistar!

Ég hef komist að því að læknar eru sadistar. Þeir hljóta að fá alveg þvílíkt kikk út úr því að pína fólk á þeim forsendum að það geri fólkinu gott... á endanum. Ég veit að ég myndi gera það.

Hvað um það.
Ég er þessi týpíski blöðrubólgusjúklingur. Ég fæ blöðrubólgu af minnsta tilefni og í vetur hef ég fengið hana sérstaklega oft. Blöðrubólga er oft kölluð hveitibrauðssjúkdómur því það er hægt að tengja hana beint við kynlíf.
Ég fór þess vegna til læknis. Læknirinn vildi að ég færi í blöðruspeglun sem og ég gerði, í morgun. Það er VONT!!! Það á ekki að vera neitt sérstaklega vont, en það var VONT í mínu tilfelli.
Í ofanálag ákvað hann að skella mér í þvagrásarvíkkun, svona í leiðinni.
Þá tók hann prik, aðeins sverara en þvagrásin, og stakk því upp í hana, síðan annað aðeins sverara en það fyrsta og þriðja og sverasta síðast. Þetta var bara vont og leikur sem aðeins hörðustu sadistar gera, og mig langar að prófa að gera við einhvern.

Núna í dag ætla ég að taka því rólega og nota tækifærið í tiltekt á blogginu.

Ummæli

Vinsælar færslur