Big girls....

you are beautyful.

Mika er í pínu uppáhaldi hjá mér þessa dagana og þetta lag fékk mig aðeins til að pæla.

Það er ekki auðvelt að vera stór stelpa í þessum heimi sem við búum í.
Ekki nóg með að þessum konum sé gefinn þungur dómur af samfélaginu fyrir útlit sitt þá fá kærastar og makar einnig að finna fyrir fordómum.
Þannig að það er nokkuð til í þessu hjá honum. Það þarf hugrekki til að vera með stórri stelpu, hugrekki til að þora að vera með henni þegar allir virðast elska mjónur, hugrekki til að þola þær augnagotur og gagnríni sem maður fær, en jafnframt styrk til að styðja hana og styrkja.

'Cause a real woman
Needs a real man here's why

You take your girl
And multiply her by four
Now a whole lotta woman
Needs a whole lot more

Enn og aftur þetta með útlitsdýrkunina. Það er nóg til að láta venjulegri konu líða illa yfir útlitinu, hvað þá ef hún er í þyngri kanntinum.
Þegar fólk sér bara grannt, fullkomið og fótósjoppað fólk í klámblöðum og myndum er almenningur heilaþveginn með því að það sé sexý. Ekkert annað. Því fjær sem maður kemst þessari ímynd, þeim mun minna sexý er maður. Og það er eflaust það sem flestar stórar konur hugsa. Þess vegna þurfa þær töluvert meira til þess eins að njóta kynlífs með öðrum.
Ef manni líður eins og maður sé ekki sexý, þá er maður það einhvernveginn ekki og þá getur maður ekki notið kynlífs. Og einhverra hluta vegna efast ég um að manni liði sexý sé maður feitur í þessum heimi.

Ummæli

Einhver sagði…
Konur eru oft nógu sexý út af útgeisluninni.

Gott að sjá þig blogga á ný.

-Gillimann.
Nafnlaus sagði…
Útgeislunin er mest sexí!
Nafnlaus sagði…
Hæ prinsessa

Ertu ekki sjálf haldin fordómum ef þú ímyndar þér að stórar konur geti ekki fílað sig sexí? Þetta er tóm vitleysa hjá þér. Stórar konur fíla sig bara jafn sexí og miklar greddupíkur og hvaða aðrar konur sem er. Fer bara eftir einstaklingunum, því stórar konur eru ekki einsleit hjörð.

Vinsælar færslur