Fíkn

Ég hef oft verið spurð að því hvort ég sé haldin kynlífsfíkn. Ég held að svo sé ekki. Ég hef mikinn áhuga á kynlífi og öllu sem því við kemur. En ég er ekki háð því.

En til þess að skoða það nánar kíkti ég inn á SLAA á Íslandi og fann þar spurningalista til að svara.


1. Hefurðu reynt að stjórna því hversu oft þú hittir ákveðna manneskju eða hversu mikið kynlíf þú stundar?

-Já, en þá er markmiðið oftast að stunda meira kynlíf heldur en minna. Mér finnst ég ekki stunda kynlíf nógu mikið, svo ég set mér markmið að stunda það oftar.

2. Hefur þér þótt erfitt að slíta sambandi, jafnvel þó að sambandið sé eyðileggjandi fyrir þig og láti þér líða illa?

-Nei.

3. Reynirðu að halda ástar og kynlífsmálum þínum leyndum fyrir öðrum?

-Já, mögulega fyrir mömmu og pabba og álíka fólki.

4. Kemstu í „vímu” af ástar og kynlífi?

-Já, fullnægingarvímu. En hver gerir það ekki?

5. Hefur þú stundað kynlíf á óviðeigandi tímum, óviðeigandi stöðum eða með óviðeigandi fólki?

-Telst bíll vera óviðeigandi? Fólk gerir svo margt til að lífga upp á kynlífið hjá sér að mér finnst það ekki teljast með að finna einhvern frumlegan stað til að gera'ða á.

6. Reynirðu að setja þér reglur eða gefurðu sjálfum/sjálfri þér loforð í sambandi við ástar eða kynlíf þitt sem þú getur ekki farið eftir?

-Já, þetta með markmið, að stunda kynlíf oftar, eða amk 3 í viku. Mér gengur skelfilega að fara eftir því.

7. Hefur þú stundað kynlíf með manneskju sem þig langaði ekki til að stunda kynlíf með?

-Nei.

8. Trúir þú því að kynlíf og/eða samband eigi eftir að gera líf þitt þolanlegra?

-"Þolanlegra" lætur þetta hljóma eins og líf mitt sé óþolanlegt, en kynlíf gerir lífið skemmtilegra.

9. Hefur þér einhverntíman liðið eins og þú yrðir að stunda kynlíf?

-Neeeeiiíí.... Ekki nema þegar ég hef verið að drepast úr greddu.

10. Trúir þú því að einhver geti „lagað” þig?

-Nei. Ekki nema lýtalæknir teljist með.

11. Reynirðu, eða hefur þú reynt, að halda tölu yfir rekkjunauta þína með því að skrifa hjá þér lista eða annað?

-Já, ég er með fullkomið bókhald yfir þá.

12. Finnur þú fyrir örvæntingu eða óróleika þegar þú ert aðskilin/n frá rekkjunauti þínum eða elskhuga?

-Nei.

13. Ertu búin að missa töluna yfir rekkjunauta þína, eða hversu mörgum þú hefur sofið hjá?

-Nei, eins og ég sagði þá er ég með bókhald.

14. Finnurðu fyrir örvæntingu þegar þú hugsar um þörf þína til að finna þér elskhuga, fá kynferðislegt “fix” eða finna framtíðar maka?

-Nei.

15. Hefur þú stundað óábyrgt kynlíf, án þess að hugsa um afleiðingarnar þ.e. án þess að leiða hugann að því að þú gætir fengið herpes, lekanda, getið barn, orðið ólétt o.s.frv.?

-Nei.

16. Finnst þér þú alltaf vera að “lenda” í lélegum samböndum?

-Nei.

17. Finnst þér að eini, eða aðal kostur þinn í sambandi sé hversu góður rekkjunautur þú ert eða hæfileiki þinn til að veita hinum aðilanum tilfinningalegt “fix”?

-Nei.

18. Finnst þér eins og þú sért ekki alveg “lifandi” nema þú sért með maka þínum eða bólfélaga?

-Nei.

19. Finnst þér þú eiga rétt á kynlífi?

-Já. Pottþétt. Það eiga allir rétt á kynlífi, þó svo það sé ekki nema bara með sjálfum sér. Kynlíf er ein af frumþörfum mannsins.

20. Ertu í sambandi sem þú getur ekki slitið þótt þig langi til þess?

-Mig langar ekkert að slíta það svo ég er ekkert að reyna.

21. Hefur þú einhverntíman ógnað fjárhagslegu öryggi þínu eða stöðu þinni í samfélaginu þegar þú reynir að komast yfir kynlífsfélaga?

-Nei, held ekki.

22. Trúirðu því að vandræði í “ástarlífi” þínu stafi af því að þú ert alltaf með “röngu” manneskjunni?

-Nei, alls ekki. Allir eiga einhverntíman við einhver vandræði að stríða í "ástarlífinu".

23. Hefur þú einhverntíma ógnað eða eyðilagt alvöru samband sem þú hefur verið í út af kynlífshegðun þinni utan sambandsins?

-Nei.

24. Fyndist þér lífið tilgangslaust ef þú gætir hvorki lifað kynlífi né verið í ástarsambandi?

-Nei, það er svo margt annað í lífinu en bara kynlíf.

25. Daðrar þú eða kemur af stað kynferðislegri spennu við fólk, jafnvel þótt þú ætlir þér það ekki?

-Veit það ekki....

26. Hefur kynhegðun þín eða sambandshegðun haft áhrif á orðspor þitt?

-Ef satt best skal segja þá veit ég það ekki. Sumir gætu litið niður á mig vegna kynhegðunar minnar. En það er bara þeirra vandamál. Mér er í raun sama hvaða orðspor fer af mér á meðan ég er sátt.

27. Kemurðu þér í “sambönd” eða stundarðu kynlíf til að forðast vandamál í lífinu?

-Nei.

28. Líður þér illa yfir sjálfsfróun þinni, hversu oft þú fróar þér, fantasíunum sem þú notar eða hlutum?

-Nei. Þetta er allt óskup "eðlilegt".

29. Tekur þú þátt í einhverskonar gægjum eða ertu með sýniþörf sem lætur þér líða illa?

-Nei.

30. Finnst þér eins og þú þarfnist aukinnar tilbreytingar í kynlífi eða samböndum til að losa um líkamlega eða tilfinningalega spennu?

-Nei.

31. Þarft þú að stunda kynlíf eða “verða ástfanginn” til að þér líði eins og “alvöru” manni eða konu?

-Nei.

32. Finnst þér eins og kynferðishegðun þín og ástarlíf beri ekki árangur sem erfiði?

-Nei.

33. Áttu í erfiðleikum með að einbeita þér að öðrum sviðum lífsins vegna þess að kynlífs eða ástarsambönd þín (hugsanir og tilfinningar) taka frá þér orku?

-Nei.

34. Stendurðu þig að því að vera í þráhyggju gagnvart ákveðinni persónu eða kynlífsupplifun jafnvel þó að það valdi þér óþægindum, tilfinningalegum sársauka eða fíkn?

-Nei.

35. Hefurðu einhverntíman óskað þess að þú gætir hætt einhverri kynferðislegri hegðun eða sambandi í ákveðinn tíma?

-Nei.

36. Finnst þér eins og tilfinningalegur sársauki í lífi þínu fari vaxandi, sama hvað þú gerir?

-Nei.

37. Finnst þér eins og þú hafir ekki heilbrigða sjálfsmynd?

-Nei.


38. Finnst þér kynhegðun þín og sambönd/samband trufla andlegt líf þitt á neikvæðan hátt?

-Nei.

39. Finnst þér erfitt að ráða við líf þitt sökum þess að þú ert að verða tilfinningalega háðari öðrum í vaxandi mæli?

-Nei.

40. Hefur þú einhverntíman hugsað að það gæti orðið meira úr þér og þú gætir fengið meira út úr lífinu ef þú værir ekki svo knúin/n af þörf þinni fyrir kynlíf og sambönd?

-Nei.


Fjögur alvöru Já. Eftir því sem ég best veit þá er það þannig að ef þú ert með 3 eða fleiri já þarftu að fara að skoða stöðuna.
Það sem ég horfi í að er kynlíf truflar ekki mitt daglega líf. Svo það er ekkert vandamál og þá er ekkert vandamál.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
intresting....en mig er farið að lengja eftir nýrri sögu;)

Vinsælar færslur