Tvöhundraðasta færslan

Ég sá það þegar ég skráði mig inn að þetta er færsla nr. 200. Gaman að því.

Ég fór á Jesus Christ Súperstar. Það var geggjað!!! Fólk sprangandi um á leðurbuxum og korsettum syngjandi og dansandi.

Ég verð að viðurkenna a Júdas heillaði mig upp úr skónum. Mig langaði helst að taka hann með heim og nota að vild. Ég sat slefandi yfir honum fyrir hlé og í hléinu spurði G mig hvort ég mér finndist Júdas flottur. Er ég svona gegnsæ? Eru það kannski bara þessir rauðhærðu skeggjuðu sem ég heillast að? ;o)
Allavega var G alveg sáttur við að taka Júdas með heim, ef að við myndum líka taka Maríu Magdalenu. Persónulega fannst mér hún rosa flott og samþykkti það eins og skot.

Held samt að sýningin verði svolítið fátækleg þegar bæði Júdas og María eru heima hjá mér.

Ummæli

Vinsælar færslur