Dagdraumar

Við G erum að byggja hús hérna í fjarkistan.
Að vísu fæ ég ekki dýflissuna sem mig langaði í, en kannski er hægt að innrétta eitt herbergið sem leikherbergi.

Núna læt ég mig dreyma um BDSM-innflutningspartýið. Það verður geggjað....
Er nokkuð asnalegt að vera búin að plana innflutningspartý áður en húsið er komið upp??

Ég sé fyrir mér að meðfram heimkeyrslunni verða kyndlar.... alla leiðina heim að húsinu. Og í garðinum líka ef fólk skyldi vilja fara út og fá sér frískt loft.
Þegar komið er inn í húsið er lýsingin í daufari kanntinum og kerti út um allt. Þræll tekur við yfirhöfnum af gestunum sem eru vel valdir einstaklingar með þetta sameiginlega áhugamál. Nú eða bara mjög frjálslynt fólk. Þegar komið er inn eru nokkrir þrælar sem sinna gestunum. Passa að veitingarnar séu í lagi, ganga um beina með drykki og eru lifandi kertastjakar. Síðan þegar líður á kvöldið mega gestir nota þessa þræla eins og þeim lystir.
Niður úr bita í loftinu hanga ólar og keðjur sem hægt er að nota og í þremur herbergjum er mismunandi aðstaða fyrir fólk að leika sér. Í einu herberginu hangir róla úr loftinu, í öðru er bekkur eða lítið rúm og í þriðja... Hver veit? Herbergin eru ólík hver á sinn hátt og veita mismunandi möguleika. Hvert þeirra er þó fallega lýst svo að sá dom og sub sem nýta sér aðstöðuna geta leikið í friði en áhorfendur geta haldið sig í skugganum og truflað leikinn sem minnst.
Tónlistin er róleg og lág til að yfirgnæfa ekki samtöl gestanna. Og ég sem húsfreyja er glæsilega klædd í stuttu pilsi og þröngu korsetti við. Þrælar stjana við mig og gera allt fyrir mig svo ég þarf lítið að hafa fyrir partýinu. Herra G gengur með mig í taumi og monntar sig við gestina og ég nýt þess að vera fallega djásnið hans....
Þegar líður á kvöldið verður fólkið afslappaðra og fer í létta leiki byggða á þessu áhugamáli. Svona er þetta fram á rauða nótt....

Hver vill koma í partý?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
jeii ég er strax farin að hlakka til ;) þ.e. ef ég má koma ...... ég versla mér allavega skó á eftir ;)

Vinsælar færslur