Óhöpp

Allir hafa lent í því að það gerist óhapp við bólfarir eða í sambandi við þær. Ég veit að ég hef lent í þeim nokkrum. Mis gáfulegum og mis skemmtilegum.

Ég hef skrifað áður um sum þessara atriða en önnur ekki. En hér er listi yfir óhöpp sem hafa gerst hjá mér... Þau eru nokkur. Ég veit ekki hvort óhapp sé endilega rétta orðið, en ég ætla að nota það.

-Fyrstu nóttina sem ég gisti hjá fyrsta kærastanum mínum var ég með blöðrubólgu og pissaði undir í rúmið hans. Það var frekar mikið vandræðalegt.

-Nokkru eftir fyrstu nóttina hjá fyrsta kærstanum mínum vorum við í heitum ástarleik þegar smokkurinn rifnaði. Hann fékk kvíðakast og hafði þvílíkar áhyggjur af því að úr þessu yrði barn. Það sem úr varð var að ég tók neyðarpilluna.

-Eina nóttina með öðrum kærastanum mínum vorum við að geraða. Hann var orðinn vel graður og entist í einar fimm sekúndur. Greyið tók þessu mjög nærri sér.

-Eitt skiptið var ég með bólfélaga einum. Ég var að prófa nýtt sleipiefni sem ég keypti mér og heitir eitthvað Tingle. Það var með minntukeim og átti að örva svæðið. Ég var búin að bera það á mig og þegar bólfélaginn stakk honum inn fór efnið á liminn og vinurinn var rokinn inn á bað um leið. Honum sveið svo hrikalega undan því. Það var ekki mikið um leiki það kvöldið.

-Meira með efnum. Prófaði einusinni að bera krem sem átti að deyfa kónginn á einn bólfélagann. Síðan fór mín bara að totta vininn... Efnið fór auðvitað upp í munninn á mér og var frekar bragðvont. Í ofanálag dofnaði munnurinn á mér upp.

-Fyrir rúmum tveimur árum gisti hjá mér strákur sem æfir lyftingar af kappi og er stór og mikill. Hann skemmdi rúmið mitt!! Eftir að hann svaf hjá mér var hola öðru megin í því. Fyrir utan að þá nóttina fór rúmið einhverra hluta vegna utaní ofninn og önnur hliðinn á dýnunni bráðnaði. Þurfti að láta gera við dýnuna. Dýr nótt.

-Eina nóttina með einum bólfélaga var ég að klöngrast ofaná hann og þegar ég ætlaði að stinga honum inn fór hann eitthvað skakkt og ég braut á honum tippið!! Það var víst ekki gott og ég fékk alveg að heyra það. Veit samt ekki betur en það hafi alveg verið nothæft eftir þetta. Hann brotnaði samt ekki í alvörunni, en hann marðist.

-Enn einn bólfélagi sem ég fékk að gista hjá pissaði undir. Ég veit ekki hvort það var blöðrubólgu að kenna eða eitthvað annað...

Núna þið...

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég var einusinni að með kærustunni í svona rúmmi þar sem rimlar halda uppi dýninnu og það vildi ekki betur til en að allt í einu fóru þeir að brotna hver af öðrum á meðan leikar stóðu sem hæst. Maður kippti sér ekkert upp við fyrstu 2-3 en þegar maður lá orðið í sveig niður á gólf var ekki annað hægt en að staldra við.

Vinsælar færslur