Áts...

Eins og kemur fram í fyrri færslu er ég að leita að sub. Ég hef talað við nokkra og lent á mjög skemmtilegu spjalli við ýmsa.

Núna í kvöld var ég að spjalla við strák. Heillandi strákur. Höfðaði vel til mín og virtist vera á svipaðri bylgjulengd og ég. Allt gekk í lyndi og ég var farin að læða inn spurningum til að skoða betur áhugasvið og möguleika á að gera eitthvað meira úr þessu. Þá kemur þessi skemmtilega spurning: "en getur þú bent mér á einhverja góða dom hér á landi"

Átz!!!

Ég er s.s. ekki nógu góð fyrir þig...

Ég hef fengið þessa spurningu oftar en einusinni og oftar en tvisvar. Svo virðist sem fólk geri sér ekki grein fyrir móðguninni sem hún felur í sér. Fyrir mig segir hún: Þú ert ekki nógu góð fyrir mig, en kannski þekkir þú einhverja sem er nógu góð, viltu benda mér á hana. Eins og það sé sjálfsagt mál að maður sé einhver hjónabandsmiðlari fyrir undirgefna karlmenn...

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þú mátt drottna yfir mér..... hafðu samband webmaster@pimp.is
Nafnlaus sagði…
Eru þeir ekki bara að gefa þér átyllu til að þú getir refsað þeim?
Prinsessan sagði…
Refsingar eru ekki minn stíll...

Vinsælar færslur