Bloggar á ný

Ég átti mjög skemmtilegt samtal við strák í dag. Hann spurði hvort ég ætlaði ekki að fara að blogga aftur. Mér finnst eiginlega vera kominn tími til.

Það er búið að vera brjálað hjá mér að gera í allt sumar. Allt frá því ég opna augun á morgnanna þangað til ég fer í rúmið á kvöldin hef ég verið á fullu. Að sama skapi hefur ekki verið mikil orka eftir til að stunda kynlíf. En núna undanfarið hefur greddan farið að krauma í mér. Blautir dagdraumar skjóta upp kollinum oft á tíðum og ég algjörlega gleymi mér í þeim. Við G höfum stundað meira kynlíf undanfarna viku heldur en í allt sumar. Á kvöldin áður en við sofnum og á morgnanna áður en við skríðum á lappir. Það er eins og líkami minn krefjist kynlífs og ef ég læt hann ekki hafa það, þá fæ ég ekki stundlegan frið. Aftur á móti verð ég að viðurkenna að gott morgunkynlíf heldur manni vel heitum alveg fram á kvöld....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Logsins mætt aftur.

Alltaf gaman að lesa.

kv xxx

Vinsælar færslur