Forleikskortið

Hvaða pör hafa ekki lent í því að vera að stunda kynlíf og mótleikarinn er bara að spila á kolvitlausa strengi? Það eru eflaust nokkur pör sem hafa einmitt ekki lent í þessu. En það eru án efa þeim mun fleiri pör sem hafa lent í þessu.
Ég kannast við þetta og maður einhvernveginn nennir ekkert að stunda kynlíf þegar staðan er svona. Maður reynir að leiðbeina makanum, en það einhvernveginn kemst ekki alveg til skila. Kannski maður sé bara svona lélegur í að segja til?
Ég var að horfa á Oprhu (held að þetta sé skrifað svona) einn morguninn og hún var að ræða við kynlífsfræðing. Konu sem hjálpar pörum með kynlífið. Kynlífsfræðingurinn var einmitt með ráð við þessum vanda. Hún kallaði það forleikskortið.
Forleikskortið er einfaldlega útlínur mannslíkamans að framan og aftan og inn á það eiga pörin að merkja við þá staði sem þau vilja að séu örvaðir í forleik og svo þá staði sem þau myndu örva á maka sínum. Í Oprhu voru tekin nokkur dæmi um pör sem hafa notað forleikskortin og misræmi á milli þeirra staða sem þau vildu vera örvuð og þeirra staða sem þau myndu örva var gífurlegt. Þegar maður leit snöggt yfir muninn á kortunum þá er engin furða að fólk var að spila á vitlausa strengi.

Mér finnst þetta stórsniðugt og ætla að prófa þetta sjálf. Þessi kort eru að finna á http://www.oprah.com/article/seriesandspecials/previousshows/pkgsex/20081113_tows_step2

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Dásamlega gaman að þú skulir vera farinn að blogga aftur.
Skoða síðuna reglulega og var ánægður að sjá þig koma aftur þó að ég sé allt of latur við að kommenta.

Gaman að lesa pælingar þínar og gríðarlega yfirgripsmikla þekkingu á kynlífi. Haltu endilega áfram.

Skemmtileg lesning síðast um upplifun þína af klemmum og hvernig sársaukastigið breytist við fullnægingu. Ég hef stundum spáð í hversu svakalega hugurinn breytist líka við fullnægingu.

Stundum þegar ég fróa mér leitar hugurinn í fantasíu með áveðinni konu sem svaf nokkrum sinnum hjá fyrir nokkrum árum. Meðan allt er í gangi og fram að fullnægingu finnst mér ekkert meira æsandi en að hugsa hana en svo um leið og fullnægingin kemur breytist allur áhugi á henni í algjört áhugaleysi og á eftir verð ég í raun steinhissa að hugsa um hversu þessi fantasía æsti mig upp.
Erfitt að koma orðum að þessu en þú skilur vonandi innihaldið :)

En enn og aftur, takk fyrir pælingar þínar.

ESS

Vinsælar færslur