Ekki nógu gaman

Mér finnst kynlífið mitt ekki nógu spennandi þessa dagana. Reyndar alveg þessar vikurnar og mánuðina. Við G erum búin að vera ótrúlega upptekin eitthvað. G að vinna og ég í skóla og við reynum að nýta hvern lausan klukkutíma sem við höfum til að standsetja húsið okkar. Smíða, mála og sparsla. Ég er komin með ógeð af því!! Og þá er lítil sem engin orka eftir til að gera eitthvað gaman. Löngunin fylgir líka einhvernveginn með í kjölfarið. Mann langar ekki að gera neitt!! Maður vill bara fara að sofa, eða drýfa sig framúr til að fara að gera eitthvað. Mér leiðist það, en svona er þetta bara. Það hafa eflaust þúsund önnur pör lent í þessu alveg sama og flest komist í gegnum það. Finnarnir segja reyndar að fólk byggir húsið og standsetur það áður en það síðan skilur. Það er nokkuð til í því! Þetta tekur verulega á.
Mér finnst hreinlega kominn tími til að gera eitthvað öðruvísi! Eitthvað skemmtilegt og spennandi! Eitthvað virkilega krassandi! Eitthvað til að koma kynlífinu upp í 7unda himinn!

Einhverjar hugmyndir? Er opin fyrir öllu!!

Ummæli

Vinsælar færslur