Jólin nálgast

Myndi maður setja kynlífsdót á jólaóskalistann? Ég held að fæstir myndu gera það. En ef það er eitthvað sem mann virkilega, virkilega langar í? Þá myndi maður kannski segja makanum frá því og vona það besta.
Ég held að það væri mjög gaman að fá kynlífsdót í jólagjöf. Maður getur séð hvað makanum langar að gera í gegnum gjöfina og það getur kryddað kynlífið og gert það skemmtilegra og meira spennandi. Ég ímynda mér að ef að ég fengi kynlífsleikfang í jólagjöf þá gæti ég varla beðið eftir að prófa það með G. Það væri virkilega mikið "turn-on" fyrir mig. Ég aftur á móti hef átt og á flest allt það kynlífsdót sem mig hefur einhverntíman langað í, og í gegnum tíðina hef ég komist að því að það er bara brot af því sem ég nota reglulega.

Ummæli

Vinsælar færslur