Jólagjöfin í ár!

G fékk kettling í jólagjöf og gjörsamlega dýrkar hann. Enda er litla skinnið alveg frábært í flesta staði... Nottla fyrir utan þegar hann pissar í rúmið okkar og svona.

En hvað kemur kettlingur málinu við? Það er eiginlega skondni hlutinn.

Eitt kvöldið lá kattarstýrið uppi í rúmi hjá mér milli jóla og nýárs. Hann malaði hástöfum og kúrði sig upp við mig. Þetta var óskup notalegt eitthvað. G kemur inn í herbergi stuttu seinna og spyr mig hvort ég hafi verið að fróa mér. Ég neita því auðvitað, þar sem ég hafði ekki verið að stunda slíka iðju. Hann spyr hvort ég sé alveg viss og segist þá hafa heyrt í titrara. Ég vissi ekki alveg hvað á honum stóð veðrið fyrr en ég fattaði að hann hefur eflaust heyrt malið í kettinum og talið að það væri titrari í gangi. Enda malar kettlingskjáninn óeðlilega hátt!!

Ummæli

Vinsælar færslur