Þjóðin á lyfjum

Getur verið að hálf þjóðin sé kynsvelt af því að hinn helmingurinn er á lyfjum? Í alvöru talað! Við vorum fimm að spjalla saman um þetta. Tvær af okkur fimm voru að stunda gott kynlíf með makanum, ein var einhleyp og ekki að stunda kynlíf að ráði, og þær tvær síðustu sögðu að makar þeirra væru á svo sterkum lyfjum að kynlöngun þeirra væri engin þannig að þær sátu eftir kynsveltar með sárt ennið!!
En spáið í þetta! Rosalega margir Íslendingar eru á einhverskonar lyfjum. Mjög margir eru á einhverskonar þunglyndis- eða kvíðalyfjum sem hafa þær aukaverkanir að kynlöngun hverfur!! Þjóðin okkar á eftir að deyja út, því til þess að fjölga okkur verðum við að stunda kynlíf!! Engin kynlöngun = ekkert kynlíf = engin fólksfjölgun = Íslendingar deyja út!!

Við erum í útrýmingahættu!!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvað með getnaðarvarnapilluna? Finnst ykkur hún dempa niður kynlöngun?
Prinsessan sagði…
Ég hef ekki verið á getnaðarvarnarpillunni í ein 5 ár, svo ég þekki það ekki. Á sínum tíma voru pillurnar mjög mismunandi. Sumum konum fannst eins og sumar pillur dempuðu niður kynlöngunina, en aðrar ekki.
Er ekki dempuð kynlöngun ákveðin getnaðarvörn? ;o)
Prinsessan sagði…
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

Vinsælar færslur