Fullnæging karla

Sami titill aftur.

Smá hugleiðingar út frá þessari reynslu. Ég ræddi þetta við G og spurði hann m.a. út í það hvernig fullnægingin hafi verið. Hann sagði að hún hafi ekki verið neitt spes, að hann hafi eiginlega ekki fundið fyrir henni og að hún hafi lítið gert fyrir hann. Ég hef einhvernveginn aldrei hugsað það þannig. Ég hélt að karlar fengju alltaf eitthvað gott út úr fullnægingunni, eitthvað svona... "aah.. þetta var gott!" hvernig sem fullnægingin væri. Ég veit að karlar geta fengið það of fljótt og þeim finnst það oft leiðinlegt og skammast sín jafnvel. En ég hélt að það væri samt gott, að það væri einhver losun. En svo er víst ekki! Ekki ef eitthvað er að marka það sem G sagði. En ætli það sé ekki líka mjög einstaklingsbundið!!

Ummæli

Vinsælar færslur