Strípihneigð

Ég elska að vera nakin. Að ganga um nakin heima hjá mér er eitt af því besta sem ég geri. Það er ótrúlega eitthvað gott. Maður er algjörlega óheftur.

Ég fæ líka eitthvað út úr því að berhátta mig. Það fer auðvitað eftir því í hverju ég er hverju sinni, og hvernig mér líður. En það er eitthvað kikk við það. Koma inn í svefnherbergi í náttslopp, losa bandið, taka hann af öxlunum og láta hann falla á gólfið. Mér finnst líka mjög gaman að klæða mig úr víðum bol þegar ég er ber innanundir. Setja hendurnar í kross og lyfta bolnum upp yfir haust. Finna brjóstin lyftast með og leyfa þeim að njóta sín. Það væri ekki verra ef að einhver væri að fylgjast með....

Út frá þessum pælingum þá fór ég að velta því fyrir mér, ef að kona myndi ganga um og "flassa" fólk. Þ.e. vera í rykfrakka, nakin innanundir og myndi ganga upp að fólki og sýna þeim nekt sína. Hvernig tæki fólk því? Maður þekkir þetta hjá körlum og þá eru oftast öskur og læti! Væri það líka ef að kona myndi gera þetta?

Ummæli

Vinsælar færslur