Kynlífsraskanir

Datt niður á þessa síðu. Þarna er fjallað um raskanir sem konur glíma við í sambandi við kynlífið, sem eru alveg ótrúlega margar. Ég tók nokkrar af handahófi og skellti hingað inn.

Dyspareunia - Konur (og karlar) með þessa röskun upplifa annars óútskýrða verki í kynfærum fyrir, við eða eftir samfarir.

Vaginismus - Konur með þessa röskun upplifa annars óútskýrða og endurtekna eða viðvarandi kippi í vöðvum í kringum ytri þriðjung legganga tengdum því að eitthvað fari inn í leggöngin.

Female Sexual Arousal Disorder - Konur með þessa röskun upplifa litla getu til að fá eða viðhalda líkamlega örvun (t.d bleytu) sem annars kemur fram við örvun.

Hypoactive Sexual Desire Disorder - Einstaklingar með þessa röskun upplifa enga eða skerta kynlífslöngun án annarra geðraskana.

Female Orgasmic disorder - Konur með þessa röskun upplifa litla eða enga getu til að fá fullnægingu.

Ég man eftir einni í viðbót sem ég sá ekki í fljótu bragði, og það er sú röskun að fá fullnægingar þegar minnst varir. Ég man eftir stelpu sem ég sá í sjónvarpinu sem þjáðist af þessari röskun. Hún sagðist fá allt að hundrað fullnægingar á dag, sem komu fyrirvaralaust og hvar sem hún var staðsett.

Ummæli

Vinsælar færslur