Eldri menn

Það er ekkert sem jafnast á við eldri menn... Allt frá myndarlegum mönnum með grátt í vöngum upp í heldri menn með snjóhvítt hár sem halda sér vel.

Ég kynntist eldri manni fyrir nokkrum árum sem heillaði mig upp úr skónum, og ef að ég hefði verið einhleyp þá hefði ég svo sannarlega reynt að skríða undir sængina hjá honum. Hann er ungur í anda, myndarlegur, hávaxinn og herðarbreiður, skemmtilegur, með ótrúlega flotta rödd og kann að nota hana! Þegar maður er í kringum hann þá lætur hann manni líða eins og maður sé einstakur! Hann hefur nokkurn veginn allt til brunns að bera.

Nema... Hann er samkynhneigður. Ég komst að því ekki alls fyrir löngu. Einhvernveginn sé ekki heldrimannaljómann yfir honum lengur. Ég get ekki séð mig fyrir mér kúra undir sæng hjá honum og ræða allt milli himins og jarðar eftir gott kynlíf.

Vantar nýjan eldri mann til að dagdreyma um.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það vantar eiginlega svona box fyrir spurningar handa þér...

Þannig að ég set þetta hingað!

Hefur þú einhverntímann verið hengd upp á löppunum og þér fullnægt?

Vinsælar færslur