Einkamálaauglýsingar

Eins og ég skrifaði síðast þá skoða ég stundum einkamál.is og á þar auglýsingu. Ég hef mjög gaman af því að skoða úrvalið og "window-shoppa" karlmenn þarna. Ég hef tekið sérstaklega eftir því undanfarið að margir karlmenn eru með myndir af einhverjum súkkulaðibrúnum massakroppum í auglýsingunni sinni. Auðvitað fá auglýsingar með myndir meiri athygli en aðrar, en ég samt leyfi mér að efast um það að stór hluti manna inni á einkamal.is séu massaðir og skornir og súkkulaðibrúnir. Þetta virkar kannski til að laða kvennfólkið að, en hvernig er það svo þegar kemur að því að hittast og gæinn sem mætir á svæðið er ekki massaður og skorinn og súkkulaðibrúnn á hörund? Sumir bera því við að þeir hafi verið svona en séu dottnir úr æfingu, en málið er að aðeins örfá prósent fólks nær og getur náð þessum árangri í ræktinni...

Ummæli

Vinsælar færslur