Fantasíur

Ég var spurð að því um daginn hvort ég ætti mér einhverja fantasíu, og hvernig sú fantasía væri. Jájá, ég á mér alveg fantasíu og alveg nokkrar. En þær eru ekki lengur eins og þær voru í gamla daga. Ég er búin að prófa flest sem mig langar til að prófa, 3some, 5some, í heitum potti, í bíl, undir berum himni o.s.fr. (utan almennilegt gang-bang). Núna snúa þær ekki endilega að því hvað er gert, heldur með hverjum eða hvernig. Til dæmis snýr kennara-fantasían mín að ákveðnum kennara, þar sem hann gefur tvíræð skilaboð, fer sér hægt og er ákveðinn í fasi. Hugmyndin er ekki sú að sofa bara hjá einhverjum kennara, heldur bara þessum. Og ekki bara að hann sé kennari, heldur að hann sé elskhugi eins og ég er að leita eftir.

Spyrjandinn er eflaust ekki að leita eftir því að fá svar þess efnis að mesta fantasía mín þessa daganna sé að sofa hjá nákvæmlega þessum kennara. En þannig er það.

Ummæli

Vinsælar færslur