Konur og kynlíf með aldrinum.

Einhverntíman las ég að konur væru á kynferðislegum hátindi í kringum þrítugt, á meðan karlmenn væru það í kringum tvítugt.
Ég trúði þessu auðvitað ekki þegar ég las þetta, enda hef ég alltaf verið mjög virk sjálf, en núna held ég að það sé nokkuð til í þessu.
Þegar ég horfi til baka þá sé ég unga snót sem var svolítið rótlaus, ekkert sérlega kröfuhörð og til í að prófa allt. Flögraði frá einum elskhuga til þess næsta í þeim tilgangi að prófa sig áfram. Gaf sig alla og naut kynlífsins á meðan á því stóð, en gerði ekki miklar kröfur til þess. Fullægingin var bara happ og glapp hvort kæmi eða ekki og kynlíf án hennar eitthvað sem var oftar en ekki.
Í dag sé ég konu sem er þroskuð, kynferðislega virk og staðföst. Hún veit hvað hún vill, enda búin að prófa margt, en er alveg til í að bæta í reynslubankann. Kröfuhörð á elskhugann, en mjög gefandi. Nautnafull og blíð en getur vel sleppt sér í ástríðufullum atlotum. Þekkir líkama sinn og veit hvað virkar, svo að það stendur ekki á fullnæginginunni. En sé stemmingin þannig má alveg sleppa fullnægingunni, en það er þá vegna þess að valið er að sleppa henni.

Þar sem ég á ennþá þrjú ár í að verða þrítug, þá get ég ekki annað sagt en að framtíðin sé björt.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þetta verður spennandi þrjú ár...

Vinsælar færslur