Kynlíf fyrir mér

Ég hef brennandi áhuga á kynlífi. Allt sem tengist kynlífi eða er kynferðislegt á einhvern hátt heillar mig. Það væri helber lygi að segja að ég væri ekki hugfangin af kynlífi og öllu sem því viðkemur, en ég get ekki sagt að ég sé endalaust spólgröð og alltaf til í að ríða, en kannski oft.

G er ekki alveg á sömu síðu og ég hvað kynlífið varðar. Ég held að kynlífið skipti hann minna máli en það skiptir mig, og oft er það ég sem er til í tuskið en hann ekki. Að minnsta kosti undanfarið. Það er líka annað sem okkur greinir á um. Ég vil stunda kynlíf kynlífsins vegna, bara til að stunda kynlíf, til að halda neistanum við og hafa gaman. Ekki endilega af því að ég sé gröð. Ég vil stunda kynlíf að minnsta kosti einusinni yfir hverja helgi, gröð eður ei. Standi eitthvað í veginum fyrir samfarir, þá vil ég gera það á annan hátt. Totta, strúka, kyssa, kela, binda, flengja, eða eitthvað álíka. Ég vil stunda kynlíf bara svo ég geti sagt að ég hafi stundað kynlíf. Ég lýt svo á að maður þarf ekki að vera graður til að vilja stunda kynlíf. Það er hægt að gera eitthvað til að kveikja áhugann og lostann. G virðist aftur á móti þurfa að vera graður fyrir til að vilja stunda kynlíf, ólíkt mér sem suðar um kynlíf þó að það sé ekki vottur af greddu í mér.

Kynlíf fyrir mér er líka meira en bara ástarleikurinn sjálfur. Það er allt hitt líka. Það er að klípa í rassinn á makanum, það er að strúkja og kyssa, daðra, ögra, senda tvíræð skilaboð. Hafa fyrir því að gera eitthvað fyrir mótleikarann þó svo það virki ekki beint á mann sjálfann. Það er að klæða sig upp, vitandi vits að fimm mínútum seinna sé öll fyrirhöfnin liggjandi í hrúgu á gólfinu. Það er að leita sér leiða og finna upplýsingar um að gera eitthvað spennandi og öðruvísi til að breyta til. Það er að lesa sér til um allt sem viðkemur kynlífi. Það eru öll samskipti karla og kvenna. Það er að fá sæluhroll við að hugsa til gærkvöldsins.

Og eitt er alveg víst, án þess værum við ekki hér.

Ummæli

Vinsælar færslur