Gamlir draugar

Stundum dett ég niður í nostalgíukast og hugsa til baka um fyrri tíma og fyrrum elskhuga. Hvað varð um þá? Ylja þeir sér við minningarnar eins og ég?

Ein uppáhalds minningin mín (og uppáhalds reynslusagan reyndar líka) er í söguformi Fantasía come true.
Eftir stutt spjall á vefnum ákvað ég að uppfylla fantasíu þessa svo gott sem ókunnuga manns. Við mæltum okkur mót og ég hoppaði upp í bíl til hans þar sem hann batt fyrir augun á mér og fór með mig út fyrir bæinn á vit ævintýranna.
Hugmyndin var að ég fengi ekki að sjá hann, við myndum njótast og síðan myndu leiðir okkar skilja. Fantasían gekk að mestu leiti upp nákvæmlega svona og eftir þennan fyrsta og eina fund hef ég hvorki séð eða heyrt í þessum manni. Síðan eru liðin mörg ár en alltaf þegar ég sé bíl eins og hann var á athuga ég hvort það sé kunnulegt andlit við stýrið.

Í dag þegar ég svo kíkti inn á einkamál auglýsinguna mína biðu mín þessi skilaboð:


Ég held við vitum hver við erum

Hæ.

Ef þú ert sú sem ég held að þú sért, þá hittumst við einu sinni í bústað með bundið fyrir augun. Er það rétt hjá mér? :-)

Kv.

Ekki veit ég hvernig hann vissi að ég er manneskjan á bak við auglýsinguna en við það að sjá þessi skilaboð fór fiðringur um mig og ég verð að viðurkenna að ég spennt að sjá hvert þetta leiðir...

Ummæli

Unknown sagði…
Hæ hæ elsku sæta þú 😗
Held að ég hafi séð þig tilsýndar um daginn í sundi.
Gat ekki annað en flett upp á þér aftur og fundið þig hér.
Gaman að lesa þetta allt aftur og upplifa í huganum þessa sturluðu stund aftur. Magnaðasta kynlífsreynsla sem ég hef upplifað fyrr og síðar ❤
Kv. Xxxx

Vinsælar færslur