Hvað er nauðsynlegt til að kynlíf sé fullnægjandi?

Ég fæ oft þessa spurningu: „Hvað fílaru?“ Ég fíla mjög margt. En það sem ég fíla er ekki endilega það sem ég sækist eftir, eða er það sem mér finnst nauðsynlegt að sé til staðar í kynlífi. Spurningin ætti frekar að vera: „Hvaða þættir eru nauðsynlegir svo að þú njótir kynlífsins?“ Þetta er kannski frekar óspennandi og þung spurning en engu að síður...

Í fyrsta lagi verð ég að fá þessa tilfinningu að ég sé girnileg í augum mótleikarans. Léttar snertingar, áhorf, harður limur! Allt hjálpar þetta til að mér finnist ég vera girnileg og sexý, því honum finnst það.

Í öðru lagi: snertingar, kúr, kossar, nart, blíðlegheit. Í einu orði nánd. Ég þarf mikla nánd. Þó svo að ég sækist kannski eftir harkalegu kynlífi með hártogunum og uppnefnum og fíli það í botn, þá er það nándin sem að er nauðsynleg til að hitt gangi upp.

Í þriðja lagi: Fullnæging HANS. Það skiptir mig persónulega verulega miklu máli að hann fái það. Ég er alltaf að komast að þessu betur og betur. Ég hef alltaf átt erfitt með að fá það sjálf. Þó svo ég leggi mig alla fram, þá kemur það fyrir að ég fæ það hreinlega ekki. Ég er farin að sætta mig við það þó ég dauðöfundi hinar konurnar sem fá það eins og ekkert sé. Aftur á móti ef að hann fær það ekki, þá finnst mér kynlífið hafa verið ófullnægjandi og að ég hljóti að vera fráhrindandi á einhvern hátt. Ég veit að þetta á ekki endilega við rök að styðjast og auðvitað geta verið fullt af ástæðum fyrir því að hann fái það ekki en svona er ég bara.

Hvað ég svo fíla er langur listi aðgerða sem ekki endilega innihalda þessi þrjú atriði að ofan. En séu þau uppfyllt þá er ég til í flest annað.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
persónulega finns tmér best þegar fullnægingin heris tá sama tíma hjá báðum aðilum... gerist ekki oft en gerist stundum :) iðulega gerist það hjá okkur í innilegu rólegu kynlífi... ekki svona RBB. kv rodeo6y

Vinsælar færslur