Innri friður

Ég veit fyrir víst að kynlíf hefur ákaflega góð áhrif á geðheilsuna. Ég er ekki frá því að BDSM hafi mun betri áhrif.

Glöggir lesendur mínir geta eflaust getið sér til um það hvað ég var að gera :o) Þannig er mál með vexti að ég hitti mann í gær sem er drottnandi. Við tókum einn stuttan leik. Tíminn sem var til umráða var ekki ýkja langur en leikurinn var þeim mun betri. Í bílnum á leiðinni heim sat ég með rauðann rass, aum brjóst og alveg í skýjunum.
Í dag hef ég tekið eftir því að brjóstin á mér eru óvenjulega spræk og geirvörturnar þrýsta sér út í bolinn af engri sjáanlegri ástæðu en venjulega þarf mikið til, og mér sveið svolítið undan bekknum í saunaklefanum í sundi áðan. Á sama tíma er ég í betra skapi en ég hef verið langa lengi og finn fyrir stóískri innri ró.

Ummæli

Vinsælar færslur