BDSM munch

Í kjölfar síðustu færslu fékk ég fyrirspurn um hvað þetta munch væri.

BDSM munch er vetvangur fyrir fólk sem er áhugasamt um BDSM til þess að hittast og ræða málin. Munchin eru í formi kaffihúsa/pöbbahittings og eru með mjög óformlegu sniði. Fólk mætir, heilsast og ræðir málin. Umræðuefnin eru almenns efnis og ekkert endilega tengd BDSM eða kynlífi, þó svo það sé auðvitað skemmtilegast. Undanfarið hefur mætingin á munchin verið mjög góð og síðast voru t.d. um 25 manns.

Öllum er velkomið að kíkja og ný andlit eru sérstaklega velkomin.

Munchin eru haldin á Gay 46 á Hverfisgötu 46, 101 Reykjavík, fyrsta miðvikudag og þriðja mánudag hvers mánaðar og byrja kl. 20:00.

Ummæli

Vinsælar færslur