Í ljósi síðasta pósts...

Sú umræða kom upp hvort að ég væri tvíkynhneigð eða myndi sofa hjá konu. Hingað til hef ég alltaf harðneitað því. Ég fór samt aðeins að endurskoða málið og komst að því mér til óvæntrar ánægju að undir ákveðnum kringumstæðum væri ég alveg til í að eiga kynferðislega stund með konu.

Hugmyndin er meira á formi fantasíu en eitthvað sem ég væri til í að stökkva á við fyrsta tækifæri. Hver veit nema ég svo myndi gugna komi þessar aðstæður upp? Hugmyndin/fantasían er aftur á móti sú að ég hitti lesbíu á djamminu. Hún er sæt og sexý og opinberlega 100% lesbísk. Við myndum væntanlega fara að spjalla og hún myndi fara að reyna við mig og myndi svo hreinlega táldraga mig. Hún yrði að vera ágeng enda held ég að ég yrði frekar treg í taumi. Við færum svo heim til hennar þar sem hún myndi sýna mér og kenna hvernig lesbískt kynlíf virkar...

Hvernig sem það svosem virkar ;o)

Ummæli

Vinsælar færslur