Sigga Dögg

Sigga Dögg kynfræðingur lifir drauma lífinu mínu.

Fyrir það fyrsta gerði hún það sem ég gugnaði á og fór erlendis að læra kynfræði. Hún hefur brennandi áhuga á öllu sem tengist kynlífi og er opin fyrir nýjungum. Hún er vikulega með þátt á K 100,5 sem heitir Kjaftað um kynlíf og bæði skrifar um kynlíf og heldur fyrirlestra.

Það væri ekki nógu djúpt í árinni tekið ef að ég segðist vera græn af öfund!
Það er aftur á móti erfitt að vera grænn af öfundsýki í garð jafn frábærrar manneskju sem klárlega er að vinna vinnuna sína og gerir það vel. Mér hlotnaðist sá heiður að hitta hana á BDSM munch-i um daginn og það varð bara til þess að hún hækkaði í áliti hjá mér. Hennar sýn á kynfræðslu er sú að á meðan það er öruggt, samþykkt og meðvitað má allt og fátt er tabú. Hún vill endilega opna umræðuna fyrir BDSM og sýna það í sínu rétta ljósi.

Hún hefur tækifærin til að gera það og það er spennandi að sjá hvernig fer.

Hún heldur líka úti heimasíðunni siggadogg.is sem ég mæli mjög með.

Ummæli

Vinsælar færslur