Að perrast eða klæmast

Ég sat við tölvuna um daginn og var að skiptast á fantasíum við spjallfélaga mínum. Upp spratt gluggi af msn og þessar týpísku spurningar fylgdu í kjölfarið:

Einhvergaurútíbæ
Hæ, hvað segist?

Ég
Allt gott 

Einhvergaurútíbæ
Hvað ertu að gera?

Ég
Perrast

Þar sem ég var að skiptast á fantasíum við þennan spjallfélaga minn þá fannst mér þetta réttasta svarið. Það var jú, smá perraskapur í gangi og við vorum að ræða kosti og galla mismunandi fantasía og kynlífathafna í þeim. Einhvergaurútíbæ vildi þá endilega perrast við mig líka og ég var svosem alveg til í það. Nema i kjölfarið kemur svæsin lýsing á því sem hann ætlaði að gera við mig. Hann vildi sem sagt klæmast.

Ég fór þá að velta því fyrir mér hver munurinn væri á því perrast og klæmast. Ég geri allavega greinamun á þessu tvennu og legg ólíka merkingu í orðin. Það eru eflaust ekki allir sammála því.

Að perrast er í mínum huga að ræða kynlíf, athafnir, kynferðislega hluti og allt sem tengist kynlífi og hafa gaman af. Að perrast í mínum huga er til dæmis að skeggræða kosti og galla rifflaðra smokka eða endaþarmsmaka. Afhverju maður fílar doggý en ekki 69.

Að klæmast er svo að tala eða skrifa með það í huga að örva eða örvast kynferðislega af því. Að klæmast í mínum huga væri til dæmis lýsing á því hvernig ég ætla að meðhöndla tippið á þér ef að ég kæmi höndum yfir það.

Ég get alveg orðið gröð við að vera að perrast og það er bara æðislegt, en leikurinn er ekki til þess gerður. Hann er gerður til að hafa gaman og spjalla og fá hugmyndir. Aftur á móti þá nenni ég ekki lengur að klæmast. Mér finnst ekkert gaman að fá ýtarlega lýsingu yfir það hvernig einhver ókunnugur gaur út í bæ ætlar að halda mér á barmi fullnægingarinnar tímunum saman og ekki leyfa mér að fá það fyrr en ég grátbið hann um það. Ahaa... já, einmitt. Svoleiðis bara gerist ekki í alvörunni.

Ef ég klæmist við einhvern, þá er það einhver sem ég þekki og einhver sem þekkir inn á mig. Þannig að það er hægt að láta sig dreyma og fantasera af því að maður veit hvað virkar og hvað ekki í alvörunni. Enginn sem ég hef sofið hjá myndi halda því fram að hann ætlaði að halda mér á barmi fullnægingar. Kannski myndi hann segjast ætla að taka mig það harkalega að það þarf að kæfa öskrin í mér með koddanum. Það er líka eitthvað sem myndi virka á mig, af því að ég veit að það gæti gerst í alvörunni.


Ummæli

Vinsælar færslur