Að selja sig til að fá harkalegt kynlíf

Harkalegt kynlíf er gott kynlíf. Það finnst mér allavega.
Ég elska að vera haldið niðri og riði, togað í hárið á mér, haldið fyrir muninn á mér, hamast á mér á alla kanta. Ég elska það og ég sækist eftir því! Ég verð eins og leir í hönum ákveðins karlmanns sem gengur hreint til verks og er fumlaus í atlotum. Ég skil algjörlega stallsystur mínar sem að sækjast eftir því sama.

Harkalegt kynlíf barst einmitt til tals í dag. Kunningi minn sagðist þekkja stelpu sem rukkar fyrir dráttinn því hún sækist eftir þessari meðferð. Það er að segja, menn sem borga fyrir dráttinn eru þeir sem eru harðir í horn að taka. Með því að rukka fyrir dráttinn tryggir hún sér að hún fái það sem hún er að sækjast eftir, sem sagt: harkalegt kynlíf.

Ég hef svo sem oft rætt vændi við spjallfélaga á netinu. Einn þeirra sagði að það væri hætt við því að maður fengi verri meðferð ef að maður selur líkama sinn, þar sem fólk gengur yfirleitt verr um hluti sem það á heldur en hluti sem það er með að láni. Miðað við þetta þá eru menn tilbúnari í að taka harðar á konum sem þeir hafa keypt aðgang að heldur en konum sem gefa sig viljugar að þeim. Eins og dæmið með stelpuna sýnir.

Mér finnst þetta rosalega áhugavert! Mér finnst líka alveg magnað að þessi stelpa hafi fundið þetta út og nýti sér þessa leið til að fá það sem hún vill fá út úr kynlífinu.

Ummæli

Vinsælar færslur