Fullnægingaröfund

Ég á frekar erfitt með að fá fullnægingu. Það þarf allavega að hafa svolítið fyrir því. Til dæmis fæ ég ekki fullnægingu með leggangaörvun eingöngu, heldur verður snípurinn að vera örvaður í leiðinni. Það er sem sagt hægt að ríða mér alla nóttina og daginn líka í öllum stellingum undir sólinni en ég fæ það ekki nema sé snípurinn sé örvaður líka.
Að sama skapi fæ ég það ekki með einhverjum látum. Það er ekki hægt að sleppa sér í losta, hafa læti og æsing og voilá: Fullnæging! Það bara gerist ekki svoleiðis hjá mér. Trúið mér, ég hef látið á það reyna. Ég þarf að komast í ákveðið hugarástand, ég þarf að ná ákveðinni slökun svo ég geti sökkt mér niður í sjálfa mig, krækt mér í einhverja góða fantasíu og fengið það, á mínum tíma.

Þetta ferli tekur sem sagt sinn tíma og gerist ekki endilega alltaf eða með hverjum sem er. Mjög fáum karlmönnum hefur tekist að fullnægja mér án þess að ég hafi sjálf verið að örva snípinn með.

Þess vegna gremst mér það svolítið þegar ókunnugir karlmenn senda mér skilaboð eða segja við mig að þeir ætli að halda mér á barmi fullnægingar, eða þeir ætli að láta mig fá það svo og svo oft, eða ég muni vera í fullnægingar algleymingi í örmum þeirra. Já, einmitt! Ég hlakka til að sjá það.

Stundum finn ég líka fyrir öfund í garð stallsystra minna sem fá það eins og ekkert sé. Rekkjunautar mínir undanfarið hafa svolítið briddað upp á þessu umræðuefni. Þessi þurfti bara að vera ofaná og ég gerði svona og þá fékk hún það um leið. Ef að hin var tekin fast í doggý þá var hún ekki lengi að fá það. Með smá fingraleikfimi þá fékk hún það aftur og aftur og aftur... Ég hafði ekki undan að telja fullnægingarnar sem hún fékk.

Suma daga verð ég alveg heilluð af því hvað aðrar konur eru heppnar. Mikið vildi ég vera svona. Aðra daga finnst mér þetta einstaklega óréttlátt af heiminum að mismuna fólki svona!

Ummæli

Vinsælar færslur