Skemmtileg hugmynd

Ég las Fifty Shades of Grey í haust og fannst hún klám út í gegn.
Það var þó eitt atriði sem ég heillaðist algjörlega að. Í því atriði setur Grey blindfold á Anastasíu, hann setur heyrnartól á hana sem eru tengd í iPod. Þetta er einhvernveginn útbúið þannig að tónlistin sem hún heyrir fer líka í hátalarakerfið í herberginu. Þannig að hún er föst í eigin heimi, sér ekkert og heyrir aðeins tónlistina sem hann vill að hún heyrir. Hún heyrir ekki hvað Grey er að bardúsa og hann leikur við hana í takt við það sem gerist í tónlistinni.
Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei prófað og verð að viðurkenna að þetta kítlaði mig svakalega. Ég þarf bara að finna mér einhvern svona græjugaur.

Ummæli

Vinsælar færslur