Jólafrí

Ég er loksins komin í jólafrí og get farið að draga andan. Desember er búinn að vera strembinn, síðasta prófið mitt var 20. og ég er búin að gera fátt annað en að vinna verkefni eða lesa fyrir próf.
Ég fann meira að segja fyrir því að kynhvötin minnkaði og áhuginn á kynlífi líka yfir prófin. Það er eiginlega öfugt við oft áður, þar sem ég verð gröð í prófalestri og langar miklu meira að fróa mér heldur en lesa. Þetta er kannski ágætis tilbreyting og ég fæ þá vonandi betri einkunnir fyrir vikið.

Ummæli

Vinsælar færslur