Sexý staðir

Sumir staðir eru einfaldlega meira sexý en aðrir. Bláa Lónið er einn af þeim stöðum. Sérstaklega þegar það er orðið dimmt.
Lýsingin og gufan af lónínu gerir umhverfið ævintýralegt, heillandi, spennandi og forboðið allt í senn. Fyrir utan þann ótrúlega heppilega kost að það sést ekkert í gegnum vatnið og hvað brjóstin á mér verða flott í vatni.
Það getur svo auðveldlega eitthvað verið í gangi undir yfirborðinu sem enginn sér. Í þau fáu skipti sem ég hef komið þangað hefur mig alltaf langað að vera pínu óþekk, fara úr sundbolnum og gera eitthvað sem er á mörkum þess að vera siðlegt, helst eitthvað sem stigur aðeins yfir þau mörk.
Samt hef ég aldrei gert neitt i Bláa Lónínu. Ég veit fyrir víst að þetta er einn algengasti staðurinn sem fólk fer á til að gera eitthvað spennandi og óhefðbundið á. Verðirnir eru einmitt alltaf á vaktinni vegna þess, sem kannski gerir það þá enn meira spennandi....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
skelfilegt fyrir konurnar, kísillinn í vatninu virkar eins og sandpappír.

Vinsælar færslur