Enn eitt partýið

Jább, BDSM-félagslífið er meira en lítið virkt þessa dagana. Núna um síðastliðna helgi var enn eitt partýið og auðvitað skellti ég mér í það. Þetta eru án efa skemmtilegustu partýin sem maður fer í! Ég mæli með því við alla sem hafa áhuga á BDSM að skella sér á munch og kíkja svo í partý. Partýin eru algjörlega kink-o-ween, reglulega, allt árið um kring, þar sem fólk tekur fram flotta fatnaðinn og gefur ekkert eftir. Þetta partý var að sjálfsögðu engin undantekning og voru allir þarna í sínu fínasta pússi, samkvæmt þeirra skilgreiningu á þvi.

Þetta partý var líka afmælis og fyrir vikið tók ég mig til og bjó til ferlega fallegan bambus staf (e. cane). Hann kom rosalega vel út, með leðurhandfangi og allt. Þegar ég var búin að pússa hann og koma leðrinu fyrir bar ég á hann olíu og lagði hann út í glugga svona til þerris.
Nema hvað, þegar ég bankaði upp á hjá afmælisbarninu þá var fallega gjöfin ennþá til þerris úti í glugga hjá mér. Ég sem hafði verið að vonast til þess að sjá afmælisbarnið prófa nýja dótið í partýinu. Þannig að mín gjöf var svohljóðandi: "Ég bjó til rosalega fallegt dót handa þér en gleymdi því heima, svo þú færð það bara næst þegar við hittumst". 

-Já, mér fannst það frekar asnalegt að koma í afmælispartý án afmælisgjafar sem ég var búin að hafa þó alveg svolítið fyrir að útbúa.


Ummæli

Vinsælar færslur