Stærðin skiptir máli

Ég fór í BDSM partý um daginn eins og dyggir lesendur mínir vita. Auðvitað endaði ég á trúnó inni í eldhúsi þar sem limastærðir voru skeggræddar. Það sem átti upptökin að þeim var afmælisgjöf partýhaldarans, apparat til að mæla ummál tippa.

Í ljós kom að allar konurnar á svæðinu, sem var þó ekki nema örfáir fermetrar, voru á því að stærðin skipti máli. Almennt var það því stærra því betra að því undanskyldu að það væri einfaldlega orðið of stórt. Of stórt eða of lítið er ekki að gera sig.
Sé það svo lítið að þær finna ekki fyrir því er það ekki að gera sig og eins ef að það er það stórt að það kemst ekki inn.
Enginn reyndar kannaðist við hafa átt við það vandamál að etja persónulega að limurinn væri einfaldlega of stór.
Allavega tvær höfðu aftur á móti sagt strák upp vegna þess hve lítið tippi hann var með. Ég vona strákanna vegna að þær hafi ekki sagt það við þá þegar þær sögðu þeim upp.

"Þetta er bara ekki að ganga hjá okkur, þú ert með svo lítið tippi" Það er bara ljótt!

Ummæli

Vinsælar færslur