Kinky-afmælispartý

Í gær gerðu perrar sér glaðan dag, eða að minnsta kosti þessi perri. 

Dagurinn byrjaði á leðurnámskeiðinu. Þangað mættu vaskir nemendur sem allir fóru heim með eitthvað fallegt. Ég verð að viðurkenna að ég er ríg montin af nemendunum og afrakstri þeirra, þeir mega svo sannarlega vera stoltir. 

Svo að loknu námskeiði fylltist húsið af allskonar kinky fólki til að gera sér glatt kvöld. Stemmingin var góð, námskeiðsfarar sýndu afrakstur dagsins, margir komu með dót með sér til að sýna eða nota og enn aðrir nutu þess sem dótið hafði upp á að bjóða. Klemmur voru settar á að minnsta kosti fjögur brjóst og kippt af með spotta. Einhverjir voru bundnir og aðrir voru lamdir með flogger og öðrum skemmtilegum áhöldum. Ég fékk meira að segja að kynnast tvíburafloggerum á eigin skinni. Á heildina litið var þetta rosalega skemmtilegt partý og þegar klukkan var langt gengin í fimm voru síðastu gestir að kveðja. 

Kinky-perra-fetish-BDSM partý eru algjörlega skemmtilegustu og áhugaverðustu partýin sem til eru. 


Ummæli

sado sagði…
Frábært partý :) Takk æðislega fyrir mig.

Vinsælar færslur