Leikur í sturtu

Ekki hjá mér, en ég þekki strák sem vinnur á sundlaug í fámennu sveitafélagi og þar gerast hlutirnir!

Einn daginn var ákaflega lítið að gera, ekki var opið fyrir almenning í sund en það voru krakkar í íþróttahúsinu svo hann leyfði erlendu pari að fara ofaní laugina þar sem hann var hvort eð er á staðnum. 
Þau voru víst ferlega kammó hvort við annað og voru að knúsast og kyssast í pottinum. Síðan fóru þau bara upp úr og drifu sig í sturtu. Eða svo hélt hann. 
Þegar hann svo var eitthvað að sníglast við sturtuklefana þá heyrir hann í þeim að spjalla saman inni í karlaklefanum. Honum verður brugðið og veit ekki alveg hvernig hann á að bera sig að svo hann leitar ráða hjá yfirmanni sínum. Yfirmaðurinn segir auðvitað að þetta sé bannað og að hann verði að reka konuna í réttan klefa. Sundlaugavörðurinn fer þá og kallar inn í klefann að konan verði að yfirgefa hann og fara í réttann klefa. En hann fær engin viðbrögð. Hann reynir aftur að kalla til þeirra en fær ekkert svar. Þá fer hann inn í klefann og kemur að þeim þar sem þau eru að hamast hvort á öðru í sturtunni(engin nánari lýsing á athæfi parsins fékkst upp úr sundlaugaverðinum, þrátt fyrir ítrekaðar og þrálátar spurningar). Auðvitað verður honum mjög brugðið en nær að koma því til skila að konan eigi að fara í réttan klefa. 
Það næsta sem sést til hennar þá trítlar hún skömmustulega yfir í kvennaklefann og þau yfirgefa svo svæðið í hvelli. 
Nokkru seinna kemur annað par af erlendi bergi brotið sem vill endilega komast í sund. 
Viðbrögð sundlaugavarðarins voru einföld og mjög skýr: NEHEHEI!

Ummæli

Vinsælar færslur