Tengingar

Mannskepnan getur verið ótrúlega einfald fyrirbæri, eins flókin og margslungin og við erum. 

Ég hef verið að leika við mann sem er með leðurblæti. Það besta sem ég hef gert fyrir þennan mann var að koma honum á óvart með leðurjakka sem ég keypti notaðan á alnetinu fyrir slikk. Í dag kætir hann fátt meira en þegar ég er klædd í leðurjakkann einan fata. Við það eitt æsist hann upp úr öllu valdi og kallar mig hinum ýmsustu nöfnum. Athyglina fíla ég í botn, ég elska að vera druslan hans og notuð af honum að vild. 
Þetta höfum við nokkrum sinnum gert. Ég klæði mig upp, við leikum, hann verður rosalega graður og ég fæ vel að finna fyrir því. 
Í gegnum þessa leiki hef ég myndað mjög sterka tengingu við jakkann. Þegar mér er sagt að fara í jakkann fer nú orðið um mig nettur fiðringur og það örlar á tilhlökkun fyrir því sem koma skal. Svo þegar ég er komin í jakkann hellist yfir mig sú tilfinning að ég sé algjör drusla og mjög drusluleg, á sama tíma finnst mér ég vera girnilegasta konan á öllu jarðríki því að ég veit að hann girnist mig mjög mikið þegar ég er svona klædd.
 
Áður en ég kynntist þessum manni hefði mér aldrei dottið í hug að flík gæti haft þessi áhrif á mig. Ég er meira að segja komin með þá kenningu að blæti geti verið smitandi og að maður "læri" að vera með blæti.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það er ótrúlegt hvað litlir hlutir geta fengið mann til að tengja og fuðra upp ´:)
xktk@hotmail.com

Vinsælar færslur