Tvöföld fróun
Ég kalla ekki allt ömmu mína þegar
kemur að kynlífi. Eitt og annað hef ég prófað og gert og fiktað
mig áfram að mörgum sviðum. Það er samt ótrúlega margt sem ég
hef ekki gert og þrátt fyrir þá reynslu sem ég hef þá er ég
alltaf að læra eitthvað nýtt og upplifa eitthvað sem ég hef
aldrei gert áður.
Ég lenti í einu slíku núna ekki
alls fyrir löngu. Ég og rekkjunauturinn lágum uppi í rúmi að
spjalla eins og við gerum oft. Ég fer eitthvað að fitla við hann. Hann dæsir og skammar mig fyrir að æsa sig upp þegar ég get
ekkert gert í því, þar sem ég var með blöðrubólgu á þessum
tímapunkti.
Það að æsa aðra er eitthvað sem æsir mig meira en
flest annað. Ég uppveðraðist við þetta og það var ekki
aftur snúið. Höndin á mér fer að gæla við liminn á honum og
ég finn hvernig líkami minn bregst við. Ég leyfi honum að finna
hversu blaut ég er og hann fer aðeins að gæla við mig, létt
og laust vegna blöðrubólgunnar sem plagaði mig. Eftir smá tíma
bið ég um að fá að klára þetta sjálf. Með liminn hans í
annarri og hina höndina á milli fóta mér fróa ég okkur báðum.
Það leið ekki á löngu þagnað til ég finn að ég nálgast
fullnægingu. Sekúndum seinna hvíslar hann að hann sé við það
að fá það. Sú vitneskja æsti mig það mikið að við fengum
það nánast samtímis.
Ég hef aldrei fróað tveimur í einu
til fullnæingar og að sama skapi hef ég aldrei fengið það á
sama tíma og rekkjunauturinn. Í kvikmyndum og bókum hefur svolítið
verið lagt upp úr því að pör fái það á sama tíma.
Einhversstaðar hef ég heyrt að það eigi að skapa meiri nánd
en annars staðar hef ég líka heyrt að það skipti engu máli.
Nánd eða ekki, hvað mig varðar þá var þetta
æðislegt....
Ummæli