Einfaldir hlutir gleðja einfaldar sálir
Ég er tiltölulega nýbyrjuð að blogga aftur og það gleður mig óendanlega mikið að sjá að sífellt fleiri eru að kíkja á síðuna. Eða alltaf þeir sömu sem gerir það þeim mun oftar. Það skiptir ekki máli hvort það er en flettingarnar eru að aukast.
Mars var met mánuður með 1385 heimsóknum og 6. apríl síðastliðin kíktu 101 inn á bloggið.
Ég er aðeins meira en pínulítið montin og að sjá svona tölur eftir erfiðan dag í vinnunni er gulls ígildi.
Ég fer sátt að sofa í kvöld.
Ummæli