Kynlífsfíkn

Ég tók þetta skimunarpróf um kynlífsfíkn um daginn.

Út úr prófinu fékk ég 3 stig en samkvæmt síðunni eru þeir sem fá 6 stig eða meira líklega haldnir kynlífsfíkn. Ég ætla ekki að segja að ég hafi andað léttar þar sem ég vil ekki meina að ég sé haldin kynlífsfíkn. Ég hef mikinn áhuga á kynlífi og ég hef mjög gaman af því að stunda það. Það aftur á móti hefur ekki truflandi áhrif á líf mitt, vinnu eða samband mitt við annað fólk. Fyrir mér er þetta meira eins og áhugamál.

Ég er samt frekar forvitin um það hvað lesendur mínir fá út úr þessu prófi, svo endilega deilið stigafjölda ykkar í athugasemdunum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já sæll.... 14 ? ég þarf að leita mér aðstoðar... hehe :)

Vinsælar færslur