Softcup

Eftir kvartið og kveinið í síðustu færslu fór ég að lesa mér aðeins til. Veraldarvefurinn er hafsjór af fróðleik og það er hægt að finna allt mögulegt og ómögulegt á alnetinu. Ég heyrði meira að segja um daginn að hagkerfi veraldarvefsins sé það þriðja stærsta í heiminum. Jæja, nóg af gagnslausum upplýsingum. Það kemur kynlífi lítið við að hagkerfi netsins er svona stórt.
Varðandi það að stunda kynlíf á blæðingum þá er til eitthvað sem heitir softcup. Þetta er apparat sem hefur verið líkt við hettuna. Þetta er svona mjúk skál, eða lítill poki á gúmmíhring, sem stungið er upp í leggöngin og safnar tíðarblóðinu. Samkvæmt heimasíðunni og reynslusögum kvenna á fetlife þá er vel hægt að stunda samfarir með softcup á sínum stað. Konur eiga víst lítið sem ekkert að finna fyrir þessu og þetta dregur úr lykt sem fylgir því að vera á blæðingum. Þannig að maður getur notið þess að vera spólgraður og gert eitthvað í því án sóðaskapsins sem því myndi annars fylgja.

Veit einhver lesenda minna hvort þetta fáist á Íslandi?

Ummæli

Vinsælar færslur